Main Content RSS FeedFréttir

Þrír tónlistarmenn bætast í hópinn

Morðingjarnir, Dimma og Lockerbie bætast í hóp frábærra tónlistarmanna á Gærunni 2011. Dimma og Morðingjarnir spila á föstudagskvöldið en Lockerbie á laugardagskvöldið.

Morning After Youth, Benny Crespo’s Gang og Douglas Wilson sáu sér ekki fært að spila á hátíðinni í ár.

 

Svipmyndir frá síðustu Gæru

Upphitun fyrir Gæruna

Upphitun verður fyrir Gæruna Föstudagskvöldið 5. ágúst á Sódóma við Hafnarstræti. Vigri, Úlfur Úlfur, Contalgen Funeral og fleiri. Miðar á Gæruna verða seldir á staðnum. Skitinn 500 kall inn

Kvikmyndahátíð Gærunnar verður djúsí

Á hátíðinni í ár verða fimm heimildarmyndir um íslenska tónlist á boðstólnum. Myndirnar verða sýndar í Króksbíói laugardag og sunnudag í samstarfi við Icelandic Cinema Online Hjálmar – Hærra ég og þú HAM Pönkið og Fræbbblanir Backyard Alpanon (Hjaltalín og Sinfó)

LISTAMENN – Gæran 2011

Tónlistarhátíðin Gæran fer fram daganna 12. – 13. ágúst í húsnæði Loðskinns, Borgarmýri 5 á Sauðárkróki. Hátíðin var haldin í fyrsta skiptið í fyrra og þar komu fram yfir 20 hljómsveitir. Innifalið í miðaverði er – Sóló/gítarkvöld á skemmtistaðnum Mælifelli fimmtudaginn 11. ágúst Tónleikar með yfir 20 hljómsveitum, frítt í sund alla helgina og bíósýningar, [...]


Bond